Erlent

Hrekkjavökubúningur sjö ára drengs vekur óhug og reiði

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Móðir sjö ára drengs í Virginíufylki Bandaríkjanna sætir gagnrýni fyrir að hafa leyft syninum að klæða sig að hætti samtakanna Ku Klux Klan á nýafstaðinni Hrekkjavöku.

Hún segir að um fjölskylduhefð sé að ræða og nefnir að bróðir sinn hafi klæðst samskonar klæðnaði á Hrekkjavöku, bæði í leikskóla og sem unglingur.

Ljósmyndin af drengnum gekk fram af netverjum.
Uppátækið vakti óhug og reiði fólks í hverfinu og ljósmynd af hinum unga Jackson Black í búningnum fór eins og eldur í sinu um internetið, en samtökin eru alræmd fyrir ofbeldisfulla baráttu sína gegn hinum ýmsu minnihlutahópum, þá helst þeldökkum Bandaríkjamönnum.

Móðirin, Jessica Black, segir ekkert athugavert við klæðnað sonarins eða samtökin sem slík. „Hvítir eiga að vera með hvítum, svartir með svörtum, karlmenn með konum og svo framvegis. Það er það sem Ku Klux Klan stendur fyrir,“ segir hún í samtali við ABC-sjónvarpsstöðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×