Ein kvennanna eignaðist dóttur í prísundinni 7. maí 2013 13:58 Amanda ásamt systur sinni og dóttur.
Búið er að handtaka þrjá bræður sem eru grunaðir um að hafa rænt þremur konum og haldið þeim föngnum á heimili eins þeirra í Cleveland í Bandaríkjunum í um tíu ár. Konunum var bjargað í gær auk sex ára gamallar stúlku sem AP fréttastofan segir að sé dóttir Amöndu Berry. Málið hefur vakið heimsathygli eftir að Amanda Berry tókst að fanga athygli nágranna síns, Charles Ramsay, sem lýsti atburðarrásinni í sjónvarpsviðtölum í gær. Þar sagði hann meðal annars að hann hefði ekki áttað sig fyllilega á nafninu, en kannast við það enda var leitin að Amöndu mikið í fjölmiðlum vestan hafs þegar hún hvarf árið 2003. Hinar konurnar sem mennirnir virðast hafa rænt hurfu árið 2002 og 2004 en allar hurfu þær skammt frá þar sem þær fundust nú, áratug síðar. Konurnar voru bundnar á heimili Ariels Castro, eins af bræðrunum, þegar lögreglan kom á vettvang. Þær voru fluttar á spítala en virðast ekki slasaðar. Nágrannar Castro segja í bandarískum fjölmiðlum að þeir hafi sjaldan orðið varir við Castro á heimili sínu. Einn granninn hélt að enginn byggi þar. Ramsay vakti heimsathygli með líflegri frásögn sinni af því þegar hann bjargaði konunum, en hann hringdi í neyðarlínuna eftir að hafa talað við Berry. Ramsay sagði um nágranna sinn að þeir hefðu borðað rifjasteik saman og hlustað á salsa-tónlist, og að hann hafi aldrei grunað nágranna sinn um græsku, fyrr en nú.
Mest lesið Þúsund íslensk ungmenni leggja undir sig Krít Innlent Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Innlent Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Innlent Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Innlent Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Innlent Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Innlent Árni skólameistari heldur embættinu Innlent Snekkjueigandinn stefnir íslenska ríkinu Innlent Enginn heima þegar kettirnir kveiktu í eldhúsinu Innlent Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Erlent Fleiri fréttir Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sonur stofnanda Mango handtekinn í tengslum við andlát föður síns Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Venstre vill minnihlutastjórn í Danmörku Tveir látnir og fjórir alvarlega særðir eftir skotárás á Spáni Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Ósáttir við kröfur Trumps: „Grænlendingar eru ekki til sölu“ Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego Sex kafarar látnir á Maldíveyjum Sótthreinsað hantaveiruskip væntanlegt til Íslands Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Lammy segir ekkert fararsnið á Starmer Sjá meira