Erlent

eBay fjarlægir muni úr helförinni

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Talsmaður eBay segir að vefsíðan harmi það að munirnir hafi verið til sölu á síðunni.
Talsmaður eBay segir að vefsíðan harmi það að munirnir hafi verið til sölu á síðunni.
Uppboðsvefurinn eBay hefur tekið um þrjátíu muni úr sölu af síðunni sem tengjast helför nasista. Þeirra á meðal var fangabúningur pólsks bakara sem var drepinn í Auschwitz-útrýmingarbúðunum.

Talsmaður eBay segir að vefsíðan harmi það að munirnir hafi verið til sölu á síðunni og að þeir hafi verið fjarlægðir þaðan. Þá hefur vefsíðan heitið því að gefa 40 þúsund dali til góðgerðarmála til að undirstrika afsökunarbeiðnina.

Munirnir voru settir á sölu af Viktori Kempf, en hann segist í samtali við Daily Mail vera sagnfræðingur og að hann hafi ekki gert það vegna peninganna. Helförin hafi verið hræðilegur atburður í mannkynssögunni sem aldrei megi gleymast.

Í yfirlýsingu sagði Robert Singer, formaður World Jewish Congress-bandalagsins, að sér þætti viðbjóðslegt að uppboðsvefurinn hafi reynt að hagnast á munum tengdum drápum á sex milljónum gyðinga, og að það hafi verið rétt ákvörðun að fjarlægja munina af vefsíðunni.

Á meðal þess sem var til sölu var fangabúningur pólsks bakara sem var drepinn í Auschwitz-útrýmingarbúðunum.mynd/skjáskot



Fleiri fréttir

Sjá meira


×