Rúnar: Gerðum það sem við þurftum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. júlí 2013 20:35 Mynd/Valli
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, þakkar fyrir að sínir menn séu í betra formi en norður-írska liðið Glentoran. KR vann leik liðanna í Belfast í kvöld, 3-0, og komst þar með áfram í forkeppni Evrópudeildar UEFA. „Þetta var erfitt framan af á meðan þeir höfðu orku,“ sagði Rúnar í viðtali við KR-útvarpið eftir leik. Glentoran er nú á miðju undirbúningstímabili en KR-ingar eru í góðu leikformi enda tímabilið á Íslandi nánast hálfnað. „Við gerðum það sem við þurftum að gera og unnum sannfærandi sigur á útivelli. Við erum nú komnir áfram sem er gríðarlega mikilvægt fyrir alla félagsmenn KR.“ „Það þarf að hafa fyrir svona sigri og menn lögðu sig gríðarlega mikið fram. Við þurftum algjöran toppleik til að vinna í kvöld.“ Það var hlýtt í Belfast í kvöld og Rúnar segir að aðstæður hafi verið erfiðar. „Völlurinn var erfiður og boltinn rúllaði hægt á milli manna. En þegar við vorum búnir að venjast því og hitanum náðum við að færa meiri ró yfir okkar leik. Enda spiluðum við betur í síðari hálfleik.“ KR mætir nú belgíska stórliðinu Standard Liege í annarri umferð forkeppninnar. „Það verður ofboðslega skemmtilegt. Fyrir þessu eru menn að strita allan veturinn - að fá að taka þátt í skemmtilegum Evrópuleikjum.“ „Fyrri leikurinn er á heimavelli í næstu viku og við viljum fyrst og fremst sjá til þess að þetta klárist ekki þá. Maður vill fá tvo góða leiki í einvígi sem þessu.“
Fótbolti Mest lesið „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Enski boltinn Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn „Allir orðnir vinir í skóginum“ Íslenski boltinn Ronaldo segir að stuðningsmennirnir eigi að fá lífstíðarbann Fótbolti Áttaði sig ekki á því að hafa unnið mótið Sport Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Íslenski boltinn „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Íslenski boltinn Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Körfubolti „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ „Allir orðnir vinir í skóginum“ Ronaldo segir að stuðningsmennirnir eigi að fá lífstíðarbann „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Orri og félagar steinlágu fyrir Atletico Madrid Þróttur tryggði sig í úrslitaleikinn „Mótið í rauninni búið“ „Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálfleikinn“ „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ „Fannst dómarinn missa svolítið tökin á leiknum” Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-0 | Warén jók á áhyggjur Eyjamanna „Þurfum að nýta yfirburðina betur“ Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Markaskorari Vals óviss um framtíð sína „Vorum heilt yfir sterkari aðilinn“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 4-1 | Valsmenn ekki í vandræðum með Þórsara Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Mark tekið af Hákoni í góðum sigri sem kemur Lille á toppinn Brighton valtaði yfir nýliðana Júlíus sem klettur á miðjunni í mikilvægum sigri Þróttarar brutu bikarinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Sjá meira