"Kvöld sem við gleymum aldrei" Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. júlí 2013 22:34 Mynd/Daníel
Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, segir að sínir menn hafi unnið fyrir naumum sigri þess gegn færeyska liðinu HB í forkeppni Evrópudeildar UEFA í kvöld. Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli í Vestmannaeyjum og því þurftu Eyjamenn á marki að halda í Færeyjum í kvöld. Það kom ekki fyrr en á 90. mínútu er varamaðurinn Arnar Bragi Bergsson skoraði úr vítaspyrnu. Arnar Bragi á enn eftir að spila sinn fyrsta deildarleik fyrir ÍBV en hans fyrsti leikur var fyrri Evrópuleikurinn gegn HB. „Þeir byrjuðu betur fyrstu 20 mínúturnar í kvöld en svo tókum við okkur taki og komumst inn í leikinn,“ sagði Hermann í samtali við Vísi eftir leikinn. „En eftir það fór leikurinn fram á þeirra vallarhelmingi. Við fengum nokkur færi sem við náðum ekki að nýta en svo kom sigurmarkið í lokin. Þetta gerist varla sætara.“ Hermann segir að Arnar Bragi hafi verið handviss um að fá að taka vítið í kvöld. „Ég þurfti að spyrja hann 2-3 sinnum um hvort að hann væri viss. Hann treysti sér fullkomnlega til þess og var ískaldur,“ segir Hermann sem kom sjálfur inn á sem varamaður í kvöld, rétt eins og Arnar Bragi. „Ég var feginn því annars hefði ég þurft að taka spyrnuna. Hann gerði mér því greiða,“ bætir hann við í léttum dúr. Hermann segir að þegar að ÍBV hafi brugðist við öflugri byrjun HB hafi leikurinn snúist við. „Við breyttum aðeins til í uppstillingu okkar og tókum þá völdin og vorum sterkari aðilinn. Það er því ekki spurning að sigurinn hafi verið sanngjarn heilt yfir þessa tvo leiki. Það er ekki flóknara en svo.“ ÍBV mætir Rauðu stjörnunni frá Serbíu í næstu umferð. „Það hefur verið mikið að gera að undanförnu og ég hef ekkert skoðað liðið. Við eigum Þór á sunnudag og förum svo út.“ „En það er mikil tilhlökkun og spenna í hópnum, enda stórlið með ríka sögu. Það verður mikið ævintýri fyrir okkur að fara þangað og vonandi minning sem menn muni geyma alla ævi. Strákarnir eiga heldur ekki eftir að gleyma leiknum í kvöld.“
Fótbolti Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Hildur til Newcastle Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Veikindi herja á norska liðið Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands Messi hágrét eftir leik Elías Már sárþjáður og fór af velli Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Györ 1-0 | Niko Hansen sá til þess að Víkingur fer með forystu til Ungverjalands