Vopnahléi komið á við Qudsaya í Sýrlandi Óli Kristján Ármannsson skrifar 11. nóvember 2013 07:00 Fjölmiðlamiðstöð Aleppo (AMC) sendi frá sér þessa mynd af uppreisnarmanni að skjóta á stjórnar-hermenn á laugardag. Fréttablaðið/AP
Í fyrsta sinn í margar vikur verður hægt að koma matvælum til fólks í bænum Qudsaya nærri höfuðborg Sýrlands í kjölfar tilslakana sem náðust í samningum stjórnarhersins og uppreisnarmanna. Bærinn er á valdi uppreisnarmanna og hefur verið í herkví vikum saman. Samkomulagið um vopnahlé við bæinn er gert á sama tíma og sýrlenska stjórnarandstaðan heldur fund í Istanbúl, höfuðborg Tyrklands, um hvort senda eigi fulltrúa á friðarráðstefnu sem Bandaríkin og Rússland reyna að koma saman í Genf fyrir lok þessa árs. Stjórnarandstaðan hefur sett sem skilyrði fyrir þátttöku í friðarviðræðunum að Assad Sýrlandsforseti stígi til hliðar. Fulltrúar stjórnvalda í Sýrlandi segja hins vegar að Assad verði að minnsta kosti í embætti út kjörtímabilið, sem lýkur á næsta ári og að hann kunni að bjóða sig fram til endurkjörs. Louay Safi, talsmaður Sambands stjórnarandstæðinga, segir viðræður halda áfram. „Til eru þeir sem hafa áhyggjur af því að undirbúningur hafi verið ónógur. Og svo eru þeir sem vilja taka ákvörðun, en að loknum ákveðnum undirbúningi,“ sagði hann við blaðamenn í Istanbúl. Sjálfstætt fjölmiðlateymi aðgerðasinna í Qudsaya, hefur staðfest að vopnahléi hafi verið náð en litlar upplýsingar aðrar liggja fyrir. Fyrr í nóvember greindi hópurinn frá því að matvæli væru uppurin á mörkuðum bæjarins og að fátækustu íbúarnir byggju við sult.
Mest lesið Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Innlent Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Innlent „Ég get ekki orða bundist“ Innlent Forskot Já-hliðarinnar mælist minna Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Sjá meira