Obama var skammt frá skotárásinni í Santa Monica Jóhannes Stefánsson skrifar 8. júní 2013 13:22 Rósa Amelía Árnadóttir, nemandi við Santa Monica College sagði í samtali við Vísi.is í gærkvöldi að hún hafi séð nemendur hlaupa út úr skólanum í öngþveiti.
Að minnsta kosti fimm eru látnir og nokkrir slasaðir eftir að maður gekk berserksgang í Santa Monica í Kaliforníufylki og hóf skothríð á vegfarendur. Íslenskur nemandi í Santa Monica College varð vitni að árásinni. Lögregluyfirvöld vestanhafs töldu í upphafi að sex hefðu látist í árásinni en nú hefur komið í ljós að fimm létust og er árásarmaðurinn á meðal hinna látnu. Talið er að fyrstu fórnarlömb árásarmannsins hafi verið faðir hans og bróðir. Árásarmaðurinn notaðist við riffil í árásinni en hann var svartklæddur og með skotbelti vafið um sig. Hann var einnig íklæddur skotheldu vesti. Árásarmaðurinn hóf skotárásina við hús nálægt skólanum en eldur kviknaði í húsinu vegna árárasinnar. Maðurinn mun að því búnu hafa gengið út á götuhorn þar sem hann hóf skothríð á ökumenn bíla sem áttu leið hjá. Því næst fór skotmaðurinn á skólalóð Santa Monica College þar sem vitni sagðist hafa séð manninn skjóta konu í höfuðið. Árásin hélt svo áfram inni á bókasafni skólans en enginn varð fyrir skoti þar inni af hálfu árásarmannsinns. Árásarmaðurinn féll fyrir skotum lögreglu inni á bókasafninu. Rósa Amelía Árnadóttir, nemandi við Santa Monica College sagði í samtali við Vísi.is í gærkvöldi að hún hafi séð nemendur hlaupa út úr skólanum í öngþveiti. Hún sá síðan lögreglumenn bera þrjá út úr skólanum sem hún taldi hafa orðið fyrir barðinu á árásarmanninum. Hún vissi ekki hvort þeir væru lífs eða liðnir. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, var viðstaddur fjáröflunarviðburð skammt frá skotárásinni, sem átti sér stað um hádegisbil í gær.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Sjá meira