Borin út úr tréhúsi sínu Heimir Már Pétursson skrifar 28. júní 2013 06:58
Það eru ekki bara milljónir fullorðinna Bandaríkjamanna sem standa frammi fyrir því að vera bornir út af heimilum sínum vegna fasteignaskulda, því átta ára stúlka í bænum Emerson í New Jersey í Bandaríkjunum liggur undir hótunum að vera borin út úr tré-húsi sínu og að húsið verði rifið. Foreldrar Katie Tenebruso hjálpuðu henni að byggja ansi veglegt hús uppi í tré í garði við hús fjölskyldunnar og gáfu henni það í afmælisgjöf í fyrra. Kostnaðurinn við bygginguna nam tæpum átta hundruð þúsund krónum. Katrie kann ákaflega vel við sig í tré-húsinu þar sem hún býður vinkonum sínum reglulega til te-drykkju og annarra samkvæma. En nágranni hennar, sem kalla mætti Fúla á móti, er ekki eins ánægður með tré-húsið og Katie og hefur farið fram á það við skipulagsyfirvöld að húsið verði rifið, vegna þess að það sé byggt of hátt uppi í trénu. Paula móðir hennar segist hafa hringt á bæjarstjórnarskrifstofurnar áður en húsið var byggt og fengið þau svör að engin sérstök lög giltu um byggingu tré-húsa í bænum. Málið var tekið fyrir í bæjardómi á í gær þar sem dómari gaf fjölskyldunni frest fram í næsta mánuð til að afla leyfa, því þrátt fyrir allt gilda reglugerðir um byggingar sem ná hærrra en 4,6 metra frá jörðu, en tré-hús Katie nær allt að 5,8 metra í loft upp. Fjöldi nágranna hefur lýst yfir stuðningi við Katie og vill koma í veg fyrir að hún verði flæmd úr tré-húsinu og það rifið.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sjá meira