Gríska lögreglan rýmir byggingu gríska ríkisútvarpsins Guðsteinn Bjarnason skrifar 7. nóvember 2013 10:30 Óeirðalögreglan umkringir mótmælendur fyrir utan fyrrverandi höfuðstöðvar ríkisútvarpsins í Aþenu. Mynd/AP
Gríska óeirðalögreglan rýmdi eldsnemma í morgun höfuðstöðvar gríska ríkisútvarpsins ERT í Aþenu, en starfsemi stöðvarinnar var lögð niður í sumar. Fyrrverandi starfsmenn stöðvarinnar lögðu húsið undir sig í júní ásamt velunnurum sínum ýmsum. Þeir höfðu haldið áfram að senda út efni á netinu, þar á meðal fréttir og heimildarþætti. Nokkrir tugir manna voru í húsinu þegar lögreglan réðst til inngöngu, en nokkruð hundruð manna komu síðan á staðinn til að mótmæla aðgerðum lögreglunnar. Fjórir voru handteknir, en látnir lausir fljótlega aftur. Stjórnvöld lögðu niður ríkisútvarpið allskyndilega þann 11. júní í sumar og ráku á einu bretti allt starfsfólkið, 2.700 manns. Þetta var sagt nauðsynlegur liður í sparnaðaraðgerðum ríkisins, sem hefur átt í miklu basli við að ná saman endum vegna sligandi skuldakreppu síðustu misserin. Enn eru fyrrverandi starfsmenn ERT að senda út efni á netinu á nokkrum stöðum í Grikklandi, þar sem útvarpið var með smærri starfsstöðvar. Ríkið stofnaði aðra en töluvert minni útvarpsstöð, EDT, sem er með höfuðstöðvar í öðru húsnæði í Aþenu, þar sem ERT hafði einnig verið með starfsemi.
Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Innlent Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Erlent „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Innlent Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Innlent Fleiri fréttir Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Sjá meira