Bifvélavirki hannar búnað sem auðveldar barnsfæðingar Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 15. nóvember 2013 18:47 Á hverju ári fara fram um 137 milljónir fæðinga og yfir fimm milljónir barna fæðast andvana eða deyja stuttu eftir fæðingu. Um 260 þúsund konur deyja við barnsburð.
Jorge Ondón, 59 ára gamall bifvélavirki frá Argentínu hefur hannað búnað sem getur komið sér vel í erfiðum barnsfæðingum. New York Times segir frá. Búnaðurinn er samansettur af plastpoka sem er settur inn í nokkurskonar plastermi eða plasthylki sem er smurt og sett utan um höfuð barnsins. Pokinn er svo dreginn úr hylkinu og við það myndast togkraftur sem dregur barnið í heiminn. Læknar vonast til þess að búnaðurinn verði til þess að bjarga börnum í fátækari löndum. Þeir vonast einnig til þess að notkun búnaðarins geti orðið til þess að fækka keisaraaðgerðum við fæðingar.260 þúsund konur deyja árlega við barnsburð Mario Merialdi, læknir hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (W.H.O.), segir hugmyndina mjög áhugverða og spennandi. Að sögn læknisins koma upp vandamál sem geta haft alvarlegar afleiðingar í um 10 prósent fæðinga ár ári hverju. Á hverju ári fara fram um 137 milljónir fæðinga og yfir fimm milljónir barna fæðast andvana eða deyja stuttu eftir fæðingu. Um 260 þúsund konur deyja við barnsburð. Búnaður sem þessi, sem hjálpi barninu út þegar höfuð þess er til dæmis of stórt eða þegar móðirin er orðin uppgefin, getur skipt gríðarlega miklu máli að sögn Merialdi.Hugmyndin kom til hans í svefni Ondón fékk hugmyndina eftir að hafa séð myndband á YouTube sem sýnir hvernig hægt er að ná korktöppum úr vínflöskum. Hann segir að hugmyndin hafi komið til sín í svefni og hann hófst þegar handa við tilraunir. Fyrstu tilraunirnar fóru fram í eldhúsinu og hann notaði glerflösku, plastpoka og ermi sem eiginkona hans útbjó. Hann notaði svo dúkku dóttur sinnar sem módel fyrir barn. Hugmyndin hefur þróast talsvert síðan Ondón fékk hana fyrst og hún er enn í þróun. Hann hefur fengið styrki til þess að vinna áfram að búnaðinum. Búnaðurinn hefur þegar verið prófaður við fæðingar. 30 konur hafa samþykkt að prófa hann en það voru allt konur sem höfðu fætt áður og höfðu átt áfallalausar fæðingar. Til stendur að prófa búnaðinn á fleirum og læknar vonast til þess að hann verði til þess að fækka dauðsföllum við fæðingar.
Mest lesið „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Eigendur Santé ákærðir fyrir vínsölu og peningaþvætti Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Sólmyrkvaröðin á Keflavíkurflugvelli lengri en elstu menn muna Innlent Óraði ekki fyrir að ákvæðinu yrði beitt til að sleppa morðingja Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Erlent Fleiri fréttir Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Sjá meira