Kínverski ríkisháskólinn efast um loftslagsbreytingar af mannavöldum 12. júní 2013 10:07 Kínverjar og Bandaríkjamenn hafa gjarnan verið svipaðrar skoðunar í loftslagsmálum Mynd/ AP
Kínverski ríkisháskólinn í náttúruvísindum, University of Chinese academy of Sciences, hefur þýtt og gefið út tvær viðamiklar skýrslur sem draga það í efa að hnattræn hlýnun sé af mannavöldum. Skólinn segir í tilkynningu vegna útgáfunnar á heimasíðu sinni að alþjóðasamfélagið horfi framhjá veigamiklum sönnunargögnum þess efnis að loftslagsbreytingar séu ekki af mannavöldum. Niðurstöðurnar verða kynntar við athöfn á Xijiao hótelinu í Peking á laugardaginn, en skýrslur Kínverska háskólans eru þýðingar og endurútgáfur á skýrslum frá 2009 og 2011. Í desember síðastliðnum stóð til að undirritaður yrði nýr sáttmáli á vegum Sameinuðu Þjóðanna. Sáttmálinn var þess efnis að nýjum og þyngri reglugerðum í umhverfismálum yrði komið á koppinn en ekkert varð úr vegna afstöðu Kínverskra stjórnvalda. Bandaríkin, Kanada, Japan, Indland, Rússland og Brasilía lögðust svo á sveif með Kínverjum og höfnuðu sáttmálanum. Að sögn útgefanda upprunalegu skýrslunnar er ástæða synjunarinnar sú að víða sé að myndast tortryggni í garð vísindamanna sem hafa um langt skeið haldið því fram að stórslys sé í vændum vegna framgöngu manna í umhverfismálum og að nýrri sönnunargögn sýni að loftslagsbreytingar séu að meginstefnu til ekki af mannavöldum eins og af er látið. Ljóst er að afstaða kínverskra stjórnvalda og fleiri iðnríkja í málaflokknum er umdeild, en umræða í málaflokknum er gjarnan lituð skoðunum.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fleiri fréttir Vígamenn gera uppþot í Malí Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt Sjá meira