Vargöld ríkir í undirheimum Danmerkur Þorgils Jónsson skrifar 7. mars 2013 06:00 Mikið annríki hefur verið frá áramótum hjá lögreglunni í Kaupmannahöfn þar sem glæpaklíkur hafa borist á banaspjótum. Fréttablaðið/HARI
Mikil óöld hefur ríkt í undirheimum Kaupmannahafnar þar sem glæpaklíkur takast á. Frá áramótum hafa tveir verið drepnir og margir hafa særst í fjölmörgum hnífa- og skotárásum. Þetta eru mikil umskipti frá síðasta ári þegar klíkuátök voru í lágmarki, en vöxturinn er rakinn til þess að nokkrar minni klíkur í Kaupmannahöfn sameinuðust undir merkjum Loyal to Familia (LTF). Þeir hafa síðan troðið illsakir við Værebros Hårde Kerne (VHK) sem er tengd Vítisenglum, en þess utan hefur geisað stríð milli Black Cobras og Bandidos. Stofnun LTF er rakin til þess að maður sem áður var í fararbroddi klíku einnar slapp úr fangelsi í nóvember og tók til við að sameina minni hópa gegn VHK. Það varð úr og nú telur LTF hátt í eitt hundrað meðlimi. Flestir þeirra eru af erlendu bergi brotnir en þó eru nokkrir af dönskum ættum þar á meðal. Þessi vargöld síðustu mánuði hefur þó haft þau áhrif að ungir menn hafa flúið klíkurnar af ótta um að verða fórnarlömb í næstu árásum.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir Dönsk kona ákærð fyrir að verða börnunum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Sjá meira