Heimir minnti Lars á peningana Kolbeinn Tumi Daðason í Osló skrifar 15. október 2013 08:00 Lars Lagerback er mikið á ferðinni. Fréttablaðið/Vilhelm „
Úrslitin eru það eina sem skiptir máli í fótbolta og þau segja okkur að við séum betri en Norðmenn,“ sagði Lars Lars Lagerbäck á blaðamannafundi landsliðsins í gær. Sá sænski viðurkenndi að fyrri leikurinn í Reykjavík, þar sem Ísland vann 2-0 sigur, hafi verið jafn og hlutirnir fallið með strákunum okkar. Síðan hafa Íslendingar verið á flugi en Norðmenn í lægð. Þó megi ekki gleyma því að þeir norsku eru á heimavelli. „Ef norsku leikmennirnir hugsa á svipuðum nótum og við þá vilja þeir sýna að þeir séu betri en þeir sýndu í Slóveníu.“ Leikurinn var sá fyrsti undir stjórn nýs landsliðsþjálfara, Per-Mathias Högmo, og lauk með 3-0 sigri Slóvena. Lagerbäck var beðinn um að lýsa því hver væri helsti munurinn á að þjálfa íslenska liðið og það sænska sem hann gerði í rúman áratug. „Aðallega ferðalögin,“ sagði landsliðsþjálfarinn léttur en bætti svo við að fjölmiðlaumhverfið væri vænna enda færri blaðamenn að störfum. „Svo eru það peningarnir,“ skaut Heimir Hallgrímsson inn í og uppskar hlátur. Hvort Heimir átti við laun þess sænska eða takmarkaðra starfsumhverfi var erfitt að átta sig á. Lars tók hins vegar boltann á lofti. „Þegar við fórum til Kýpur dvöldum við sex tíma á flugvellinum í London sem er ekki frábært fyrir landslið,“ sagði sá sænski og bætti við: „Það eru ekki margir í starfsliði okkar. Við höfum ekki aðstoðarmann við leikgreiningu. Heimir sér um alla slíka þætti og ég reyni að styðja við bakið á honum.Leikurinn í kvöld verður í beinni textalýsingu á Vísi. Gummi Ben mun lýsa leiknum beint á Bylgjunni og verður hægt að hlusta á lýsinguna inn í textalýsingarfrétt Vísis. Textalýsing, tölfræði og Gummi Ben. Allt á sama stað í kvöld á Vísi.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Körfubolti Óvissa í Indlandi lætur City selja Fótbolti United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Fleiri fréttir Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka Sjá meira