Indónesía lágmarkar tengslin við Ástralíu Guðsteinn Bjarnason skrifar 20. nóvember 2013 09:30 Susilo Bambang Yudhoyono Indónesíuforseti ásamt Nadjib Riphat Kesoama, sendiherra Indónesíu í Ástralíu. Mynd/EPA
Tony Abbott, forsætisráðherra Ástralíu, segist ætla að gera allt sem í sínu valdi stendur til að bæta tengslin við Indónesíu á ný. Samskipti landanna hafa verið stirð frá því uppljóstranir sýndu að Ástralir hafa njósnað um Indónesa. Í morgun skýrðu indónesísk stjórnvöld frá því að formlega hafi verið dregið verulega úr samskiptunum. Susilo Bambag Yudhoyono, forseti Indónesíu, sagði að augljóslega verði samvinnu landanna á sviði leyniþjónustumála og upplýsinga tímabundið hætt, auk þess sem engar sameiginlegar heræfingar verði haldnar. Abbott sagði hins vegar í ástralska þinginu í morgun að vissulega muni hann reyna að bæta tengslin við Indónesíu, en sagði þó óþarfi að „bregðast of hart við núna”. „Ég harma innilega þau vandræði sem fréttir fjölmiðla hafa valdið Yudhoyono, sem er mjög góður vinur Ástralíu, hugsanlega einn sá allra besti sem Ástralía á í heiminum öllum,” sagði Abbott. Ástralskir og breskir fjölmiðlar skýrðu á mánudaginn frá því að í þeirra fórum væru skjöl, komin frá bandaríska uppljóstraranum Edward Snowden, sem sýndu að leyniþjónusta Ástralíu hafi fylgst með símum bæði Yudhoyono forseta, eiginkonu hans og átta ráðherrum og embættismönnum. Norman Marciano, yfirmaður indónesísku leyniþjónustunnar, sagðist í morgun hafa fengið fullvissu fyrir því, frá áströlsku leyniþjónustunni, að þessu eftirliti hafi verið hætt.
Mest lesið „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Innlent Óvíst hvar börnin lenda í haust Innlent Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Innlent Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns Innlent Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Erlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Fleiri fréttir Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Sjá meira