Enski boltinn

Enrique þarf að fara í aðgerð

Jose Enrique.
Jose Enrique.
Jose Enrique mun ekki spila knattspyrnu fyrir Liverpool næstu mánuðina en hann þarf að fara í aðgerð á hné.

Enrique meiddist fyrst í október og spilaði síðan í lokaleik Liverpool fyrir landsleikjahléið. Meiðslin hafa tekið sig upp á ný og ekkert annað en aðgerð dugar.

"Þetta er mikið áfall fyrir okkur því hann er hæfileikaríkur leikmaður.

Liverpool á stórleik um helgina er liðið sækir nágranna sína í Everton heim á Goodison Park.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×