Villas-Boas: Tottenham-liðið ætti að skammast sín Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. nóvember 2013 08:00
Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Tottenham, var að sjálfsögðu ekki upplitsdjarfur eftir 6-0 tap á móti Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær en þetta var versta tap liðsins síðan í desember 1996. Tottenham er nú í níunda sæti deildarinnar og átta stigum á eftir toppliði Arsenal. Gylfi Þór Sigurðsson fékk ekki að koma inn á völlinn fyrr en staðan var orðin 5-0 fyrir Manchester City. „Við ættum að skammast okkur og koma sterkir til baka eftir svona tap," sagði Andre Villas-Boas eftir leikinn. Tottenham byrjaði með boltann en lenti samt undir eftir aðeins fjórtán sekúndur eftir skelfilegt útspark Hugo Lloris. „Þetta var mjög erfið byrjun fyrir okkur. Eftir hana var allt sem við lögðum upp með runnið út í sandinn. Það er ekki margt jákvætt frá þessum leik en við áttum ágætan kafla eftir að við fengum fyrsta markið á okkur," sagði Villas-Boas. „Möguleikinn okkar var í fyrri hálfleiknum því þetta hefði verið allt annar leikur ef við hefðum jafnað í 1-1. Það var mikið sjokk að fá á sig mark eftir fimmtán sekúndur," sagði Andre Villas-Boas. „Manchester City átti frábæran leik en við vorum lélegir. Ég ber ábyrgð á því að rífa leikmenn upp og það er alltaf stutt í næsta leik," sagði Villas-Boas en næsti leikur Tottenham er í Evrópudeildinni á fimmtudaginn. Það er hægt að sjá mörkin úr leiknum hér fyrir ofan.Mynd/NordicPhotos/Getty
Enski boltinn Mest lesið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Fótbolti Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Körfubolti Milner aftur til Liverpool Enski boltinn Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið Fótbolti „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Enski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Dagskráin: Stórleikur á Englandi og bikarmeistarar í dalnum Sport Fleiri fréttir Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Sjá meira