NSA njósnaði um klámnotkun meintra öfgamanna Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 27. nóvember 2013 21:57 Fullyrt er að gagnasöfnunin hafi verið til þess að draga úr trúverðugleika mannanna og grafa undan orðspori þeirra.
Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna, NSA, safnaði gögnum um klámnotkun að minnsta kosti sex manna sem stofnunin telur öfgamanna. Þetta kemur fram í leynilegu skjali frá uppljóstraranum Edward Snowden, og er fullyrt að gagnasöfnunin hafi verið til þess að draga úr trúverðugleika mannanna og grafa undan orðspori þeirra, en mennirnir sex eru allir áhrifamiklir múslimar að mati NSA. Í skjalinu, sem dagsett er 3. október 2012, eru sexmenningarnir teknir sem dæmi um það hvernig hægt sé með rafrænu eftirliti að „kortleggja persónuleikabresti fólks á borð við klámnotkun á internetinu“. Niðurstöður NSA í skjalinu eru þær að ósamræmi sé í hegðun meintra öfgamanna út á við og í einkalífinu. „Það ætti ekki að koma neinum á óvart að bandarísk yfirvöld noti allar löglegar aðferðir til þess að hindra mögulega hryðjuverkamenn,“ segir Shawn Turner, upplýsingafulltrúi NIC (National Intelligence Council), í samtali við Huffington Post.Upplýsingum safnað um alla Jameel Jaffer hjá mannréttindasamtökunum American Civil Liberties Union segir að gagnasöfnunin sé mikið áhyggjuefni. „Það er mikilvægt að hafa í huga að gagnasöfnun NSA beinist alls ekki eingöngu að þessum mönnum. Stofnunin safnar ógrynni viðkvæmra upplýsinga um nánast alla.“ Enginn sexmenninganna er talinn eiga þátt í skipulagningu hryðjuverka og kemur það fram í skjalinu. Þeir eru allir taldir búa utan Bandaríkjanna, en einn þeirra er sagður Bandarískur.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Sjá meira