Enski boltinn

Ekki rætt við Giggs fyrr en í sumar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
David Moyes, stjóri Manchester United, segir að það verður ekki rætt við Ryan Giggs um nýjan samning fyrr en í sumar.

Giggs hélt upp á fertugsafmælið sitt í dag en hann hefur spilað með United allan sinn feril.

„Það er ekki annað hægt en að bíða með allar ákvarðanir um framtíðina fyrr en í lok leiktíðar þegar leikmaður á þessum aldri á í hlut,“ sagði Moyes í dag.

„Hann er nú þegar hluti af þjálfaraliði félagsins en ég yrði mjög ánægður með ef hann hefur áhuga á að spila áfram á næsta tímabili.“

„Hann er mikil fyrirmynd fyrir unga leikmenn og gott dæmi um hvað er hægt að ná langt með réttu hugarfari.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×