Ringulreið á Filippseyjum 11. nóvember 2013 07:53 Mynd/AFP
Ástandið á Fillipseyjum er skelfilegt eftir að fellibylurinn Hayian gekk yfir eyjarnar og erfiðlega gengur fyrir björgunarsveitir að komast á staðina sem verst urður úti. Talið er að allt að tíu þúsund manns hafi farist í borginni Tacloban einni saman og hundruð eða þúsundir annarsstaðar. Hundruð þúsunda manna eru nú án húsaskjóls en fellibylurinn ruddi úr vegi íbúðarhúsum, skólum og heilum flugvelli. Í nótt náði stormurinn svo landi í Víetnam en þá hafði dregið úr styrk hans svo nú flokkast hann sem hitabeltisstormur. Þó berast fréttir af því að ellefu hafi látist, hið minnsta.Á Fillipseyjum takast menn nú á við eftirmála hildarleiksins en veðrið er talið hafa haft áhrif á líf fjögurra milljóna manna með einhverjum hætti. Margir eru án matar og hreins drykkjarvatns. Richard Gordon, yfirmaður Rauða krossins á Fillipseyjum segir algjöra ringulreið ríkja í landinu. Verið er að fjarlægja brak af vegum og vonast Gordon til þess að hjálparstarfið komist á fullt skrið í dag. Þó er veðurspáin ekki góð því djúp lægð með tilheyrandi helliregni gæti farið yfir svæðið á morgun, sem myndi hamla hjálparstarfi enn frekar. Ef svo fer að rúmlega tíu þúsund manns hafi farist í storminum er um að ræða einn mannskæðasta storm sögunnar. Mannskæðasta óveður til þessa gekk yfir Hong Kong í september 1937 þar sem ellefu þúsund manns fórust.
Mest lesið Vara við því að færð spillist í kvöld Innlent Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt Innlent „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Innlent Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Innlent Annar bíll möglega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Nýr samfélagsmiðill bara fyrir íslenskt samfélag Innlent Kynna breytta Reykjavíkurleið Innlent Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Innlent Lögreglan leitar manns Innlent Fleiri fréttir Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Viðræður Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Genf „Ég vil bara að þetta sé sanngjarnt. Að komið sé eins fram við alla“ Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Fluttu kjarnakljúf með flugvél í fyrsta sinn „Einræðisherrann“ aðstoðaði við handtöku eftirlýsta ólympíufarans Ætla einnig að draga úr vopnakaupum frá Bandaríkjunum „Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum“ Manntjón meðal almennings í Úkraínu jókst um 26 prósent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Telur Trump enn girnast Grænland Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Sjá meira