Erlent

Sýrlenska þjóðarráðið vill vera með í friðarviðræðum

Mynd/AFP
Einn stærsti stjórnarandstöðuhópurinn í Sýrlandi, Sýrlenska þjóðarráðið, hefur nú afráðið að taka þátt í friðarviðræðum við Sýrlensk stjórnvöld sem halda á í Sviss á næstunni.

Áður hafði hópurinn, sem nýtur stuðnings vesturveldanna, neitað að taka þátt nema út frá því væri gengið í byrjun að Bashar Al-Assad forseti færi frá völdum. Nú hefur hópurinn látið af þessum afarkostum þótt þeir krefjist enn afsagnar hans.

Þá vilja þeir að hjálparstarfsmönnum verði gert kleift að fara inn á átakasvæði til að hlúa að almennum borgurum auk þess sem uppreisnarmönnum í haldi verði sleppt, aðallega konum og börnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×