Íransviðræðum verði haldið áfram 11. nóvember 2013 10:30 Kerry að loknum fundarhöldum í Genf. Mynd/AP
Bandaríkjaþing undirbýr nú harðari refsiaðgerðir gegn Íran. Bæði demókratar og repúblikanar standa að þessu, þrátt fyrir að stjórn Baracks Obama forseta vilji bíða með frekari refsiaðgerðir meðan reynt er að ná samningum við Írani. Um helgina lauk í Genf samningaviðræðum sex ríkja við Íran án þess að samningar tækjust, en Hassan Rúhaní Íransforseti leggur áherslu á að viðræður muni halda áfram. John Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Íranir hafi á laugardaginn ekki „að sinni” getað fallist á tilboð ríkjanna sex, en samstaða hafi ríkt á meðal viðsemjanda Írans um tilboðið. „Frakkar samþykktu það, við samþykktum það,” hefur AP fréttastofan eftir Kerry. Frakkar eru hins vegar sagðir hafa verið mun harðari í samningaviðræðunum við Íran en Bandaríkin. Þegar samningsdrög voru að mótast voru það Frakkar sem vöruðu við því að hugsanlega væri verið að ganga of langt í að koma til móts við Írani. Ákveðið hefur verið að halda þessum viðræðum áfram áður en langt líður. Það eru fastaríkin í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, nefnilega Bandaríkjamenn, Bretar, Frakkar, Kínverjar og Rússar, auk Þjóðverja og Evrópusambandsins, sem hafa átt í þessum viðræðum við Írana um kjarnorkumálin. Deilurnar snúast um það hvort Íranir ætli sér eða hafi í það minnsta möguleika til nota kjarnorkuvinnslustöðvar sínar til þess að smíða sér kjarnoruvopn. Íranir fullyrða að þeir hafi ekkert slíkt í hyggju, en viðsemjendur þeirra vilja að þeim verði gert það ókleift. Í gær kom Yukiya Amano, yfirmaður Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar, svo til Írans til viðræðna um alþjóðlegt eftirlit með kjarnorkuáætlun Írans og betri aðgang að kjarnorkuvinnslustöðvum landsins.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Fleiri fréttir Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Sjá meira