Enski boltinn

Carrick frá keppni í allt að sex vikur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Michael Carrick í leik með United gegn Chelsea
Michael Carrick í leik með United gegn Chelsea nordicphotos/EPA
Michael Carrick, leikmaður Manchester United, gæti verið frá í allt að sex vikur.

Carrick varð að draga sig úr landsliðshópi Englendinga vegna meiðslanna í vikunni en England mætir Síle og Þýskalandi í vináttulandsleikjum á næstu dögum.

Danny Welbeck, einnig leikmaður Manchester United, þurfti einnig að draga sig úr hópnum vegna meiðsla.

Meiðsli á ökkla hafa verið að valda Carrick óþægindum og gæti því leikmaðurinn þurft að vera frá leik framyfir jól til að ná fullum bata.

David Moyes, knattspyrnustjóri United, hefur gefið miðjumanninum leyfi næstu vikuarnar til að ná sér heilum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×