Erlent

Bandaríkjamenn heita mikilli aðstoð á Filippseyjum

Mynd/AFP
Bandaríska flugmóðurskipið USS George Washington er væntanlegt til Filippseyja í dag til þess að aðstoða við björgunarstörf á svæðinu þar sem fellibylurinn Haiyan fór yfir í síðustu viku. Skipið verður nýtt sem miðstöð fyrir leitarflokka og lendingarpallur fyrir björgunarþyrlur og þyrlur sem flytja hjálpargögn til einangraðra svæða.

Bandaríkjamenn eru með margar herstöðvar á Filippseyjum og segir yfirmaður þeirra í samtali við BBC að herinn muni taka þátt í hjálparstarfinu af fullum krafti. Um ellefu milljónir manna eru sagðar hafa orðið fyrir einhverskonar áhrifum af völdum stormsins og þegar hefur verið staðfest að 2300 manns hafi farist.

Margir óttast þó að sú tala eigi eftir að hækka til muna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×