Ísraelar einir grunaðir Guðsteinn Bjarnason skrifar 8. nóvember 2013 11:45 Svissnesku prófessorarnir Francois Bochud og Patrice Mangin með skýrslu sína um Arafat. Mynd/AP
Palestínumenn hafa Ísraela grunaða um morð á Jasser Arafat, sem lést haustið 2004, 75 ára gamall. Svissneskir vísindamenn hafa rannsakað jarðneskar leifar Arafats og komist að þeirri niðurstöðu að líklega hafi hann látist af völdum póloneitrunar. Tavfik Tíraví, aðalrannsakandi Palestínustjórnar í málinu, vildi ekki lýsa því afdráttarlaust yfir að póloneitrun hafi orðið Arafat að bana. „Það skiptir ekki máli hér hvort ég segi að hann hafi verið myrtur með póloni,” sagði Tíraví á blaðamannafundi í morgun. „En ég segi, með hliðsjón af öllum þeim smáatriðum sem liggja fyrir um dauða Arafats, að hann hafi verið myrtur, og að Ísrael myrti hann.” Á fundinum tók Tíraví fram að engir aðrir en Ísraelar séu grunaðir. Þetta eru fyrstu opinberu viðbrögð Palestínumanna við skýrslunni, sem svissnesku vísindamennirnir sendu frá sér í gær. Ísraelsstjórn hefur neitað því að hafa átt nokkurn þátt í dauða Arafats. Ísraelum hafi tekist að einangra Arafat pólitískt og ekki haft neina ástæðu til að ráða hann af dögum. „Leyfið mér að segja það með eins einföldum hætti og mér er unnt: Ísrael varð Arafat ekki að bana,” sagði Jigal Palmor, talsmaður ísraelska utanríkisráðuneytisins, í morgun. „Palestínumenn ættu að hætta þessari vitleysu og hætta að koma með þessar tilhæfulausu ásakanir án minnstu sönnunar.”
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Fleiri fréttir Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Sjá meira