Erlent

Óttast að þúsundir séu enn innikróaðir

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Fjöldi manns yfirgaf hverfið í gær.
Fjöldi manns yfirgaf hverfið í gær. Nordicphotos/AFP
Óttast er að þúsundir almennra borgara kunni enn að vera innikróaðir í Moadamijet al Sham, einu úthverfa Damaskusborgar í Sýrlandi.

Umsátur stjórnarhersins um hverfið hefur staðið mánuðum saman, en Sýrlandsstjórn virðist telja að eingöngu uppreisnarmenn sé þar að finna nú.

Í gær fengu þúsundir íbúa hverfisins að yfirgefa það, að sögn fréttamanns BBC á staðnum eru óstaðfestar sögusagnir um að enn kunni þúsundir íbúa að hafast þar við, og þori ekki að fara burt.

Sýrlenska stjórnin ákvað í gær að leyfa fjölda fólks að yfirgefa hverfið eftir að fréttir bárust af því að fólk svelti og alvarlegir sjúkdómar væru farnir að gera vart við sig.

Starfsfólk Rauða hálfmánans þurfti að aðstoða veikburða fólk og sumir voru bornir út úr hverfinu á sjúkrabörum.

Allir karlmenn þurftu að stilla sér upp í röðum og leyfa sýrlenskum hermönnum að leita á sér.

Þetta hverfi er eitt þeirra sem varð fyrir efnavopnaárásum í ágúst síðastliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×