Erlent

Sprengdi sig í loft upp í strætisvagni

Mynd/AP
Sex létust og um þrjátíu liggja sárir eftir að kona sprengdi sig í loft upp um borð í strætisvagni í suðurhluta Rússlands í gærkvöldi.

Árásin átti sér stað í borginni Volgograd og eykur hún á áhyggjur manna um öryggi í landinu en fyrirhugað er að halda Vetrarólympíuleikana í borginni Sochi í febrúar.

Konan sem sprengdi sig í loft upp er sögð hafa verið frá Norður Kákasus, þar sem íslamistar sem vilja aðskilnað frá Rússlandi hafa starfandi í rúman áratug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×