Erlent

Facebook afléttir banni á myndskeiðum sem sýna morð

Mynd/ap
Samskiptasíðan Facebook hefur ákveðið að aflétta banni sem sett var á myndbönd sem sýna þegar fólk er myrt á hrottalegan hátt, til að mynda hálshöggvið. Facebook ákvað í maí að banna alfarið slík myndbönd eftir að fjölmargar kvartanir bárust en nú segja forsvarsmenn síðunnar að notendur eigi að geta horft á slíkar aðfarir, til þess að hægt sé að fordæma þær.

Þó segja þeir koma til greina að setja fram aðvörun áður en myndskeiðin fara í gang. Fjölmörg samtök hafa gagnrýnt Facebook fyrir stefnubreytinguna og meðal annars er bent á að aldurstakmarkið á síðuna sé aðeins þrettán ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×