Erlent

Þrjúþúsund slökkviliðsmenn berjast við eldana í Ástralíu

Mynd/AP
Rúmlega þrjú þúsund slökkviliðsmenn berjast nú við kjarreldana sem logað hafa í Ástralíu síðustu daga í Nýja Suður Wales fylki. Veðuraðstæður fara versnandi svo menn óttast að enn eigi eftir að bæta í eldinn.

Gríðarlegur hiti er nú á svæðinu og miklu roki er spáð í dag. Allt í allt brenna fimmtíu og nýju eldar á risastóru svæði og nítján þeirra hefur mönnum ekki tekist að hemja. Íbúar á þeim svæðum þar sem ástandið er verst hafa verið hvattir til að yfirgefa heimili sín og hundruð heimilismanna á elliheimilum hafa verið fluttir í burtu og skólastarf liggur niðði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×