Segir yfirvöld sverta mannorð Tíbeta sem hafa kveikt í sér Guðsteinn Bjarnason skrifar 23. október 2013 11:30 Tíbetar fyrir utan hof skammt frá Labrang munkaklaustrinu í Xaihe. Mynd/AP
Fjölskylda Tíbeta, sem kveikti í sjálfum sér í október árið 2012, hefur mátt sæta ásökunum lögreglu um að hafa hagnast á dauða hans. Frændi mannsins segir ekkert hæft í þessum áburði yfirvalda. „Miklu hefur verið logið um Sangay Gaytso og aðra sem hafa kveikt í sjálfum sér,” segir frændinn, sem ekki vill láta nafns síns getið af ótta við hefndaraðgerðir yfirvalda. Sangay Gaytso var 27 ára þegar hann kveikti í sér þann 6. október árið 2012. Þetta gerði hann til að mótmæla því ranglæti, sem tíbetska þjóðin hefur mátt þola af hálfu kínverskra yfirvalda á undanförnum áratugum. Stuttu eftir að hann lést kom lögreglan heim til fjölskyldu hans, spurði undarlegra spurninga og virtist vera með svörin á reiðum höndum: Var ekki búið að skipuleggja sjálfsíkveikjuna fyrirfram? Var hann ekki í tengslum við tíbetska aðskilnaðarsinna í öðrum löndum? Fékk fjölskyldan ekki greiddar þrjár milljónir júana fyrir þessa mótmælaaðgerð? Yfirvöldin héldu því fram að Gaytso hafi verið óforbetranlegur þjófur og kvennabósi. Honum hafi verið att út í að kveikja í sjálfum sér í þeim tilgangi að kynda undir þjóðernishatur meðal Tíbeta í garð Kínverja. „Þetta var allt saman tóm vitleysa,” segir frændinn í viðtali við AP fréttastofuna. Sjaldgæft er að fjölmiðlar fái tækifæri til að ræða eftirlitslaust við íbúa í Tíbet, sem Kínverjar innlimuðu árið 1951. Frá árinu 2009 hafa meira en 120 Tíbetar gripið til þessa örþrifaráðs, að kveikja í sjálfum sér til að vekja athygli á mannréttindabrotum gagnvart Tíbetum. Þeir sem þetta gera hafa ýmist komið úr röðum munka eða almennings, karlar jafnt sem konur og á ýmsum aldri.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Fleiri fréttir Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Sjá meira