Barkat endurkjörinn í Jerúsalem Guðsteinn Bjarnason skrifar 23. október 2013 12:00 Nir Barkat borgarstjóri á kjörstað. Mynd/AP
Avigdor Lieberman, utanríkisráðherra Ísraels, og Arijeh Deri, leiðtogi Shas-flokksins, börðust hart gegn því að Nir Barkat yrði endurkjörinn borgarstjóri í Jerúsalem. Þeir tefldu fram lítt reyndum frambjóðanda, Moshe Lion, sem á endanum fékk þó aðeins 45 prósent atkvæða. Barkat sigraði naumlega með 51 prósenti, en kosningaþátttakan var reyndar harla dræm: Einungis 36 prósent mættu á kjörstað í gær. Barkat var fyrst kosinn borgarstjóri árið 2008, en sigur hans þá þótti töluvert áfall fyrir strangtrúaða gyðinga, sem höfðu lengi farið með völd í borginni. Barkat hafði áður stundað viðskipti í hátæknigeiranum, og þykir að mörgu leyti hafa staðið sig vel í starfinu. Hann hefur lagt áherslu á að efla efnahag borgarinnar með því að ýta undir ferðamennsku og menningarstarfsemi. Honum tókst með þessu að stöðva brottflutning veraldlegra sinnaðra íbúa. Á hinn bóginn hefur hann verið gagnrýndur fyrir að vanrækja arabíska íbúa í austurhluta borgarinnar en vera eftirlátssamur við landtökumenn, sem hafa hirt húsnæði og lóðir af Palestínumönnum. Arabískir íbúar borgarinnar eru nógu margir til að geta, ef þeir vilja, haft mikil áhrif á útkomu kosninganna. Þeir kusu hins vegar, eins og í fyrri kosningum, að taka ekki þátt í mótmælaskyni við stjórn Ísraela á borginni. Ísraelsk stjórnvöld vilja líta svo á að Jerúsalem sé höfuðborg Ísraels, þótt það sé ekki viðurkennt í alþjóðalögum. „Á meðan ég er forsætisráðherra verður Jerúsalem sameinuð höfuðborg okkar. Þannig verður það,” sagði Benjamín Netanjahú forsætisráðherra, sem er fyrrverandi borgarstjóri í Jerúsalem, þegar hann greiddi atkvæði í borgarstjórakosningunum í gær.
Mest lesið Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Innlent Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Erlent Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Innlent Mangione sagður ætla að játa Erlent „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Erlent Fleiri fréttir Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Sjá meira