Erlent

Þýskir kennarar mega ekki tala við nemendur sína á Facebook

Samskipti kennara og nemenda eiga að fara fram á vettvangi skólans, en ekki á veraldarvefnum, segir menntamálaráðherra.
Samskipti kennara og nemenda eiga að fara fram á vettvangi skólans, en ekki á veraldarvefnum, segir menntamálaráðherra.
Yfirvöld í Þýskalandi hafa bannað kennurum að vera vinir nemenda sinna á samskiptasíðunni Facebook. Menntamálaráðherra landsins tilkynnti þetta í dag.

Kennarar sem tala við nemendur sína á internetinu, og gefa þeim aðgang að myndum og persónulegum upplýsingum um sig með því að samþykkja vinskap, ógnar fjarlægðinni sem á að vera á milli þeirra.

„Það er sífellt að færast í aukanna, sérstaklega í ákveðnum skólum, að kennarar eru að tala við nemendur sína um skólatengd verkefni á Facebook. Það viljum við ekki,“ segir talsmaður menntamálaráðherrans.

Samskipti þeirra eiga að fara fram á vettvangi skólans, en ekki á veraldarvefnum.

Dæmi eru um það að kennarar hafa verið að skipuleggja skólaferðir, eða jafnvel tilkynna nemendum um einkunnir, á Facebook. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×