Erlent

Krefst þess að dróna-árásum verði hætt

Vel fór á með þeim Sharif og Obama í Hvíta húsinu í gær, þrátt fyrir stirð samskipti síðustu misserin.
Vel fór á með þeim Sharif og Obama í Hvíta húsinu í gær, þrátt fyrir stirð samskipti síðustu misserin. Mynd/AP
Forsætisráðherra Pakistans, Nawaz Sharif, krefst þess að Bandaríkjamenn hætti svokölluðum dróna-árásum í Pakistan, þegar ómannaðar herflugvélar gera loftárásir á skotmörk á jörðu niðri. Sharif hitti Barack Obama Bandaríkjaforseta á löngum fundi í Hvíta húsinu í gær þar sem hann lagði fram þessar kröfur sínar.

Tengsl Pakistana og Bandaríkjamanna hafa verið stirð síðustu árin og misserin eða eftir að bandarískir sérsveitarmenn réðu hryðjuverkaleiðtogann Osama Bin Laden af dögum, en hann hafði verið í felum í Pakistan. Þá hafa dróna-árásir Bandaríkjamanna ollið mikilli reiði í Pakistan, en fjöldi óbreyttra borgara er sagður hafa fallið í árásunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×