Erlent

Hamfaraveður stefnir á Bretlandseyjar

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Skip strönduðu í storminum mikla árið 1987.
Skip strönduðu í storminum mikla árið 1987. Mynd/Getty Images
Bretar undirbúa sig undir einn versta storm síðari ára. Spáð er verra veðri en í þekktum stormi sem gekk yfir Bretlanseyjar árið 1987. Veðurfræðingar spá allt að 40 m/s í vindhviðum og úrhellis rigningu.

Stormurinn kemur frá Mexíkóflóa og mun koma upp að strönd Bretlandseyja í byrjun næstu viku. „Það eru líkur á að það komi stór stormur að Bretlandi í næstu viku. Það eru meiri líkur en minni að stormurinn fari í þvert yfir miðhluta landsins og vindhraði gæti náð allt að 40 m/s,“ segir veðurfræðingurinn Helen Chivers í samtali við Daily Mail.

Íbúar Bretlands eru beðnir um að búa sig undir storm og tryggja lauslega hluti í görðum sínum. Veðurfræðingar ítreka að stormur í líkingu við þann sem er í uppsiglingu komi ekki á hverjum vetri. Hér að neðan má sjá fréttaskýringu frá storminum mikla árið 1987.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×