Virðast gruna Úígúra um hryðjuverk í Peking Guðsteinn Bjarnason skrifar 29. október 2013 10:45 Lögreglan stendur vörð á Chang'an breiðgötu skammt frá Torgi hins himneska friðar í Peking. Nordicphotos/AFP
Kínverska lögreglan er að afla sér upplýsinga um tvo Úígúra í tengslum við rannsókn á atviki, sem varð í gær á Torgi hins himneska friðar (Tiananmen-torgi) í Peking, þegar bifreið var ekið inn í mannfjöldann með þeim afleiðingum að fimm manns létust og 38 slösuðust. Mennirnir eru taldir vera Úígúrar, en Úígúrar eru minnihlutaþjóð í Kína, búsettir að mestu í norðvestanverðum hluta landsins. Ekki er vitað hvort lögreglan telur að Úígúrarnir tveir hafi verið í bifreiðinni, sem ekið var á mannfjöldann, en þrír þeirra fimm sem létu lífið voru í bifreiðinni. Yfirvöld hafa ekki birt neinar upplýsingar um rannsókn málsins, en torgið í Peking er einn þekktasti staður Kína. Þar er Forboðna borgin, hinn forni bústaður keisarans í Kína, reist á fimmtándu öld. Þar er jafnan krökkt af ferðamönnum og öryggisverðir sömuleiðis á hverju strái.Eldur logaði á Torgi hins himneska friðar í gær.Nordicphotos/AFPÁ torginu blasir við stór mynd af Maó formanni, en torgið er jafnframt viðkvæmt fyrir kínversk stjórnvöld vegna atburðanna sem urðu þar árið 1989, þegar hernum var sigað á hóp ungra mótmælenda sem kröfðust lýðræðisumbóta. Úígúrar eru múslimar, en meðal þeirra eru herskáir aðskilnaðarsinnar sem áratugum saman hafa barist gegn yfirráðum Han-Kínverja í Xinjiang-héraði.
Mest lesið „Ég hef aldrei upplifað annan eins harm“ Innlent Gaf fingurinn á Miklubraut Innlent Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Innlent Hundrað og fjörutíu milljarða bótakrafa á Samherja sé súrrealísk Innlent „Þetta hefur verið þungur tími“ Innlent Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Innlent Ársæll hringdi beint í utanríkisráðherra eftir fundinn Innlent Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Erlent Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Erlent Fleiri fréttir Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Sjá meira
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent
Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Erlent