„Enginn vilji hjá Ísrael að semja um raunverulegan frið“ 11. ágúst 2013 17:00 Mahmoud Abbas, forseti Palestínu. mynd/afp
Palestínumenn hafa brugðist ókvæða við áætlunum Ísraela að byggja nærri 1.200 ný heimili á landnemabyggðum á Vesturbakkanum og í Austur Jerúsalem. Palestínumenn búa nú þegar á svæðinu og verða þeir fluttir annað. Alþjóðleg lög segja að landtökur sem þessar séu ólöglegar en Ísraelsmenn eru á öðru máli. Húsnæðismálaráðherra Ísraels, Uri Ariel tilkynnti um ákvörðunina í gær. Óttast er að hún komi til með að hafa áhrif á fyrirhugaðar samningaviðræður á milli Palestínu og Ísraels sem hefjast eiga á næstu dögum. Síðustu friðarviðræður fóru einmitt út um þúfur í september, 2010 vegna deilna um landtökur Ísraelsmanna. Um hálf milljón gyðinga búa á svokölluðum landtökusvæðum sem byggð hafa verið síðan 1967 þegar hernám Ísraela á vesturbakkanum og austur Jerúsalem hófst. Ariel svaraði gagnrýnisröddum í morgun með þeim orðum að engin þjóð tæki við skipunum frá öðrum þjóðum um hvar hún byggi hús og hvar ekki. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, sagði á dögunum að ekkert yrði af friðarviðræðum nema Ísraelar féllu frá öllum áætlunum um nýja landnemabyggð. Það loforð fékk hann hinsvegar ekki en eftir að John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna miðlaði málum var samþykkt að deiluaðiliar reyndu að ná sáttum. Mohammed Shtayeh, aðalsamningamaður Palestínu, sagði í dag að ljóst væri að engin vilji væri hjá Ísrael að semja um raunverulegan frið. Í raun væri stefna Ísraela að gera að engu þær alþjóðlegu samþykktir sem miða að því að Palestína verði sjálfstætt ríki með sömu landamæri og voru 1967.
Mest lesið Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Erlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Sjá meira