Erlent

Hákarl beit handlegg af þýskum ferðamanni á Havaí

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Ströndinni var lokað í kjölfar árásarinnar.
Ströndinni var lokað í kjölfar árásarinnar.
Tuttugu ára gömul þýsk kona missti handlegg eftir árás hákarls á Havaí í gær.

Konan var á sundi um 45 metrum frá Palauea-ströndinni á eyjunni Maui þegar hákarlinn kom að henni og beit handlegginn af.

„Ég hef aldrei heyrt öskur eins og þetta,“ segir Andree Conley-Kapoi sem var við vinnu á svæðinu þegar árásin varð og hringdi á neyðarlínuna. „Enginn myndi öskra svona nema hákarl væri að ráðast á þá.“

Það tók um tíu mínútur að koma konunni í land og var hún að sögn Conley-Kapoi alveg hvít þegar komið var með hana á kajak.

Konan var einnig með bitsár á fótlegg og er sögð þungt haldin á spítala, en ströndinni var lokað í kjölfarið. Er þetta sjöunda hákarlaárásin á Havaí frá áramótum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×