Þeir sem stunda meira kynlíf fá hærri laun Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 15. ágúst 2013 23:33 Rannsókn leiðir í ljós tengsl á milli kynferðislegrar virkni og launa. Mynd/Getty images
Fólk sem stundar kynlíf oftar en fjórum sinnum í viku fær hærri laun en samstarfsfólk þeirra sem er minna kynferðislega virkt. Þetta kemur fram í rannsókn Nick Drydakis, sem gerir rannsóknir fyrir stofnun sem að sérhæfir sig í vinnumarkaðsrannsóknum. Drydakis greindi spurningalista sem lagðir voru fyrir 7500 grískar fjölskyldur. Þátttakendur í rannsókninni voru spurðir meðal annars hversu oft í viku þeir stunduðu kynlíf, hvort þeir væru með atvinnu, hversu há laun þeir fengju og hversu marga tíma á viku þeir ynnu. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu ekki í ljós að það að stunda meira kynlíf beinlínis leiði til launahækkunar heldur sýndi fram á tengsl tveggja atriða. Annars vegar það að fólk sem stundar oftar kynlíf hefur tilhneigingu til að vera hamingjusamara, hafa meira sjálfstraust, vera rökvísara og er ólíklegra til þess að eiga við þunglyndi að stríða. Hins vegar þá staðreynd að starfsmenn sem eiga við heilsuvandamál að stríða virðast hafa minni tekjur vegna minni afkastagetu og í sumum tilfellum, mismununar. Af þessu leiðir að kynlíf gerir manneskju hamingjusamari og heilbrigðari og þeir eiginleikar leiða til hærri launa. Hvað sem öðru líður þá er það staðhæft í rannsókninni að raunveruleg tengsl séu á milli kynlífs og hærri launa og margvíslegar tilgátur eru settar fram auk þeirrar hér að ofan. Til að mynda sú að fólk sem að hefur hærri laun sé eftirsóknarverðara á stefnumótamarkaðnum og stundi því meira kynlíf. En engin gögn eru enn til sem styðja þá tilgátu.
Mest lesið Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Innlent Brugðið eftir viðtal við borgarstjóra Innlent Viðkvæm gögn tengd stjórnmálaflokki séu á símanum Innlent Mínútuþögn á Menningarnótt Innlent Segist vilja komast til himna Erlent Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Innlent Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Erlent „Þetta er innrás“ Innlent Kópavogsbær tekur aftur upp samræmd próf Innlent „Það er engin sleggja“ Innlent Fleiri fréttir Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi „Ketamín-drottningin“ játar að hafa selt Perry ketamín Hamasliðar ganga að tillögum um 60 daga vopnahlé Góður fundur en fátt fast í hendi Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Mögulegt að ná fram öryggistryggingum en aðild að NATO úr myndinni Ákærður fyrir fjórar nauðganir Gífurlegur munur á pyngjum flokkanna vestanhafs Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Hægri sveifla í Bólivíu eftir tveggja áratuga stjórnartíð sósíalista Handtekinn í tengslum við morðið við mosku í Örebro „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Sjá meira