Erlent

Kosið í Simbabve: Niðurstaðna að vænta innan fimm daga

Erkifjendurnir Robert Mugabe og Morgan Tsvangirai bítast um forsetastólinn í Simbabve. Kosningar fóru fram í gær og er niðustaðna að vænta innan fimm daga.
Erkifjendurnir Robert Mugabe og Morgan Tsvangirai bítast um forsetastólinn í Simbabve. Kosningar fóru fram í gær og er niðustaðna að vænta innan fimm daga. NordicPhotos/AFP
Talning atkvæða stendur nú yfir í Simbabve, en íbúar landsins kusu bæði til þings og forseta í gær. Kosningarnar fóru friðsamlega fram og kjörsókn var góð, en þrátt fyrir að eftirlitsmenn frá Afríkusambandinu gerðu engar athugasemdir við framkvæmd kosninganna töldu ýmsir frambjóðendur að átt hafi verið við kjörskrár. Niðurstaðna er að vænta innan fimm daga.

Allra augu beinast að slagnum um forsetaembættið milli erkifjendanna Roberts Mugabe, sitjandi forseta, og Morgans Tsvangirai forsætisráðherra.



Mugabe hefur setið við stjórnvölinn frá árinu 1980, eftir að hvíti minnihlutinn var hrakinn frá völdum, en valdatíð hans og Zanu-flokksins hefur einkennst af ofbeldi, kúgun, spillingu og efnahagslegri óráðsíu. Mugabe er 89 ára gamall, en ekki reiðubúinn til að láta af völdum fyrr en í fulla hnefana.



Morgan Tsvangirai var um árabil einn helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar í landinu og mátti þola margvíslega áþján vegna þess. Meðal annars var honum oft og iðulega varpað í fangelsi fyrir litlar eða engar sakir, þar sem hann sætti ofbeldi. Eftir sigur Tsvangirais í síðustu þingkosningum árið 2008 neyddist Mugabe til að mynda ríkisstjórn með honum, sem hefur haldið, þrátt fyrir að enn skerist í odda þeirra á milli. Fjölmiðlar hliðhollir Mugabe hafa hamrað linnulaust á Tsvangirai og bendlað hann við ýmis hneykslismál, en einnig hefur hann mátt þola gagnrýni innan sinna eigin raða fyrir að hafa látið völdin stíga sér til höfuðs.

Efnahagslíf Simbabve var rjúkandi rúst á fyrstu árunum upp úr aldamótum  en undir stjórn Tsvangirais hefur landið náð að rétta nokkuð úr kútnum upp á síðkastið.

Forsetaframbjóðendurnir hafa gjörólíka sín á framhaldið í efnahagsmálum þar sem Tsvangirai vill örva erlenda fjárfestingu í landinu, en Mugabe hefur lýst því yfir að hann hyggist þjóðnýta á annað þúsund fyrirtæki í erlendri eigu sem starfrækt eru í Simbabve.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×