Gleymdist í fangelsi - var nær dauða en lífi Boði Logason skrifar 31. júlí 2013 13:13 Daniel Chong er í dag 25 ára gamall.
Daniel Chong, háskólanemi í San Diego í Bandaríkjunum, hefur fengið hálfan milljarð íslenskra króna í skaðabætur frá stjórnvöldum í Bandaríkjunum eftir að hann var læstur inni í fangaklefa í fjóra daga án vatns né matar. Í apríl í fyrra var Chong í heimsókn hjá kunningja sínum þegar lögreglan braut sér skyndilega leið inn í íbúðina. Þar fundust meðal annars 18 þúsund e-pillur, skotvopn og skotfæri. Þegar á lögreglustöðina var komið áttuðu lögreglumennirnir sig á því að Chong var einungis gestur í húsinu og hafði ekkert með fíkniefnin eða skotvopnin að gera. Honum var tjáð að hann yrði ekki ákærður. Og þá byrjaði ballið. Einhverra hluta vegna var hann settur inn í pínulítinn gluggalausan fangaklefa. Lögreglumaður sagði honum að doka við í klefanum í nokkrar mínútur og lokaði klefanum. Þessar nokkrar mínútur urðu að fjórum dögum og enginn heimsótti hann. Þá fékk hann engan mat né vatn að drekka. „Ég sat ekki þarna og þagði. Ég sparkaði í hurðina og öskraði. Ég tók skómreimarnar mínar og setti undir hurðina til að sýna fram á að ég væri þarna inni,“ segir Chong. Þegar hann losnaði svo út úr klefanum var Chong í vægast sagt slæmu ásigkomulagi. Hann var nánar meðvitundarlaus. Hann hafði misst um 7 kíló og drukkið eigið þvag. Hann var kominn með nýrnabilun og var lagður inn á spítala í fimm daga. Yfirmaður fíkniefnalögreglunnar (e.DEA) sagði í yfirlýsingu í maí að hann væri miður sín vegna atviksins. Talsmaður lögreglunnar staðfesti svo í gær að sátt hefði náðst í málinu um að greiða Chong 4 milljónir bandaríkjadala, tæplega hálfan milljarð íslenskra króna. Chong segist ætla að halda áfram að stúdera viðskiptafræði og gerir ráð fyrir að kaupa hús fyrir foreldra sína.Frétt BBC.
Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Fleiri fréttir Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Sjá meira