Erlent

Lestarstjórinn í haldi vegna manndráps af gáleysi

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Lestarstjórinn, Francisco Jose Garzon Amo, stuttu eftir slysið.
Lestarstjórinn, Francisco Jose Garzon Amo, stuttu eftir slysið. Mynd/AFP
Lestarstjórinn sem keyrði lestina sem fór út af sporinu við Santiago de Compostela á Spáni í vikunni er nú hafður í haldi vegna manndráps af gáleysi. Þetta segir innanríkisráðherra Spánar, Fernandez Diaz í samtali við BBC.

„Það er réttmætur grundvöllur fyrir hendi til að ætla að hann geti verið ábyrgur fyrir því sem gerðist, það þarf að sanna það fyrir dómi og með rannsókn.“ Lestarstjórinn slasaðist smávægilega í slysinu og var á spítala þar til í dag, laugardag. Þá var hann færður á lögreglustöð þar sem hann verður yfirheyrður. Hafði hann neitað að svara spurningum lögreglu á meðan hann var undir læknishendi. 

78 manns létust í slysinu og er orsökin talin vera hraðakstur. Lestin var á 190 kílómetra hraða, að sögn farþega sem lifði af slysið, þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund. Fréttir þess efnis að lestarstjórinn hefði áður montað sig af því að keyra samskonar lest langt yfir hámarkshraða bárust fyrir í vikunni.

Myndband af slysinu úr öryggismyndavél sýnir hvernig lestin fer út af sporinu í beygju og lendir utan í vegg.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×