Erlent

Með mannætuflugu í maganum

Jakob Bjarnar skrifar
Mannætulirfa tók sér bólfestu í líkama Catherine Stewart sem fór nýverið til Gambíu þar sem hún vann við hjálparstörf.
Mannætulirfa tók sér bólfestu í líkama Catherine Stewart sem fór nýverið til Gambíu þar sem hún vann við hjálparstörf.
Bresk kona, Catherine Stewart, 28 ára gömul frá Liverpool, fór nýverið til Gambíu þar sem hún vann við hjálparstörf, sem er ekki í frásögur færandi, nema; þegar hún kom heim uppgötvaði hún sér til mikillar hrellingar að lirfur flugu, sem nærast á lifandi holdi, höfðu tekið sér bólfestu í maga hennar. Það var verið að éta hana lifandi.

Heim komin var hún með nokkur bit en hafði ekki miklar áhyggjur af því en þegar eitt bitanna varð gult ákvað hún að kreista það til að ná út greftrinum sem hún taldi vera. Þegar hún hins vegar kreisti fann hún hvernig það sem fyrir var færði sig til, hörfaði og virtist grafa sig innar í líkama hennar.

Catherine brá að vonum við þetta og kallaði til mann sinn til hjálpar og bað hann um að ná þessu sem væri á iði í líkama hennar. Hann kom með flísatöng, og náði að lesa talsvert stóra lirfu úr maga hennar. Leit þá á konu sína og sagði að rétt væri að leita til læknis. Við nánari athugun reyndist um að ræða mannætulirfu flugu sem heitir tumbo, lirfa sem grefur sig inn í lifandi holdið og braggast þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×