Múslimar í Guántanamo neyddir til að neyta fæðu yfir Ramadam 10. júlí 2013 12:29 Ættingjar jemenskra fanga í Guántanamo mótmæltu fyrir utan bandaríska sendiráðið í Jemen í júní og kröfðust þess að fangelsinu yrði lokað.
106 fangar af 166 í Guántanamo fangelsinu hafa farið í hungurverkfall síðustu mánuði. Þeir múslimar sem hafa staðið í hungurverkfalli fá ekki að fasta á föstumánuðinum Ramadan sem hófst í dag, heldur verða þeir neyddir til að neyta fæðu. Þessar aðgerðir eru harðlega gagnrýndar af leiðtogum samtaka múslima um heim allan og þrýsta þeir á bandarísk stjórnvöld að stöðva þær. Stór hluti fanga í Guantanamó- fangelsinu hefur verið í hungurverkfalli í marga mánuði. Af þeim 106 föngum sem eru í hungurverkfalli eru 45 þvingaðir til að neyta fæðu í gegnum slöngu sem er þrædd uppí nef þeirra niður í maga svo þeir svelti ekki til dauða. Þegar þetta fer fram eru þeir bundnir niður á höndum og fótum. Fjölmörg mannréttindasamtök hafa fordæmt slæma meðferð fanga og skelfilega aðstöðu í Guántanamo fangelsinu. Þá hafa tveir háttsettir meðlimir Demókrataflokksins í Bandaríkjunum hvatt Barack Obama til aðgerða, en hann hét því að loka fangabúðunum yrði hann kosinn forseti árið 2009. Vísir greindir einnig frá því í gær að rapparinn Mos Def hefði tekið þátt í mótmælum gegn fangabúðunum með því að láta þröngva ofan í sig mat á sama hátt og gert er við fangana í myndbandi. Guardian greinir frá.
Mest lesið Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér í fyrir á háalofti hótels Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Erlent Kuldaskil á leið yfir landið Veður Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Fleiri fréttir Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Sjá meira