Fórnarlömb fjöldamorðanna í Srebrenica í nýjar grafir Guðsteinn Bjarnason skrifar 11. júlí 2013 18:15 Ættingjar og vinir syrgja fórnarlömbin. Mynd/AP
Tugir þúsunda manna komu í dag saman í Bosníu, skammt frá bænum Srebrenica, til að jarðsetja á ný lík 409 fórnarlamba fjöldamorðanna árið 1995. Minnsta líkið er af nýfæddri stúlku, sem lét lífið þann 11. júlí árið 1995 ásamt föður sínum. Móðir hennar, Hava Muhic, fylgdi í dag til grafar dóttur sinni, sem væri orðin 18 ára hefði hún lifað. Líkin höfðu upphaflega verið sett í fjöldagrafir. Undanfarin ár hefur verið unnið að því að bera kennsl á líkamsleifarnar úr fjöldagröfunum, og hefur tekist að bera kennsl á 409 þeirra, til viðbótar þeim 5.657 sem áður hafði tekist að bera kennsl á. Það eru þessi 409 lík sem eru borin til grafar á ný í dag. Enn hefur ekki tekist að finna líkamsleifar 2.306 þeirra, sem saknað er. Alls voru 8.372 manns myrtir í Srebrenica á fimm dögum þennan júlímánuð. Flestir voru þeir karlkyns, margir á barnsaldri. Meðal þeirra sem jarðsettir voru í dag voru 43 unglingspiltar. Muhic hefur aldrei vitað hvað kom fyrir hina nýfæddu dóttur sína og vissi ekki hvar jarðneskar leifar hennar voru niðurkomnar fyrr en nýlega. Kona, sem aðstoðaði við fæðinguna, hafði sagt henni að naflastrengurnn hafi vafist um háls barnsins og það væri látið. Srebrenica var þá sérstakt verndarsvæði Sameinuðu þjóðanna meðan borgarstyrjöldin í Bosníu stóð sem hæst. Stríðið hófst árið 1992 en lauk ekki fyrr en þremur árum síðar. Serbneskir hermenn réðust inn í herbúðir friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna og mættu engri mótspyrnu af hálfu hollensku friðargæsluliðanna. Þeir skildu konur frá körlum og myrtu karlana, flestalla.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Innlent Fleiri fréttir Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás Sjá meira