Guðbjörg: Þær hafa aldrei rúllað yfir okkur Óskar Ófeigur Jónsson í Vaxjö skrifar 14. júlí 2013 14:45 Guðbjörg Gunnarsdóttir. Mynd/Fésbókin
Guðbjörg Gunnarsdóttir stóð sig vel í markinu í fyrsta leik íslenska kvennalandsliðsins á EM í Svíþjóð þegar liðið náði jafntefli á móti Noregi. Það er afar líklegt að hún haldi sæti sínu á móti Þýskalandi í kvöld þótt að Þóra Björg Helgadóttir sé öll að koma til í endurhæfingu sinni eftir tognun aftan í læri. „Við búumst við mjög erfiðum leik. Þegar við skoðum síðustu leiki okkar á móti Þýskalandi þá hafa þær ekki unnið okkur stórt. Ég held að við höfum tapað tvisvar sinnum 0-1 á móti þeim á síðustu fjórum árum. Það skiptir kannski ekki miklu máli núna en gefur okkur samt það sjálfstraust að þær hafa aldrei rúllað yfir okkur. Þær eru klárlega ekki að fara gera það á morgun," segir Guðbjörg Gunnarsdóttir, markvörður íslenska liðsins. „Ég held að þetta sé góður tímapunktur til að mæta þeim því það hafa verið ákveðin kynslóðarskipti í liðinu. Það eru ekki sömu stórstjörnur í þessu þýska liði eins og voru til dæmis á síðasta EM. Það er vissulega svakaleg hefð með þessu liði en þetta eru allir leikmenn sem hafa verið í þessu gullaldarliði þeirra sem er búið að vinna allt," segir Guðbjörg. „Það er svo erfitt að giska á hvernig þær verða í leiknum á móti okkur þótt að við höfum séð þær spila fyrir tveimur dögum á móti Hollandi. Við vitum hvernig fótbolti er því stundum eiga lið góða daga og stundum eiga þau slæma daga. Ég veit ekki hvaða dagur þetta var hjá þeim," segir Guðbjörg. „Þessi úrslit í fyrstu leikjunum opnuðu riðilinn og það eru allir á núllpunkti aftur. Það eru allir með eitt stig þannig að við höfum hvorki unnið neitt né tapað neinu," segir Guðbjörg. Hún veit að íslenska liðið er að fara spila öðruvísi leik en þann á móti Noregi á fimmtudaginn. „Þetta verður allt annar leikur. Þær eru miklu betri að halda bolta heldur en Noregur og eru líkari Dönunum. Ég held að við getum nýtt okkur það sem við lærðum í leiknum á móti Danmörku fyrir mótið. Við vitum að þær munu hafa boltann meira en við og þannig er það bara. Við verðum minna með boltan en þannig leggjum við leikinn líka upp. Það segir ekki að þær þýsku skori fleiri mörk," segir Guðbjörg. Guðbjörg vissi ekki hvort að hún fengi að halda sæti sínu í byrjunarliðinu þegar viðtalið var tekið í gær. „Ég sjálf verð að byrja að undirbúa mig eins og ég sé að fara að spila leikinn því það er bara sólarhringur í leikinn. Ég vona það besta en maður veit aldrei," sagði Guðbjörg.
Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Lygilegur viðsnúningur Argentínu Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Víkingur - Györ | Ungversku meistararnir mæta í Víkina Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Fleiri fréttir Messi hágrét eftir leik Elías Már sárþjáður og fór af velli Sviss - Kólumbía | Síðasti farseðilinn í átta liða úrslit Víkingur - Györ | Ungversku meistararnir mæta í Víkina Lygilegur viðsnúningur Argentínu Portúgalir búnir að finna eftirmann Martínez Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Segir að Ungverjarnir hafi verið óheppnir að fá Víking í drættinum Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Aftur til Frakklands eftir sneypuför til Chelsea Túfa látinn fara eftir níu töp í síðustu tíu leikjum Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Kvartar yfir álaginu: Messi gæti spilað fimm leiki á sautján dögum Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Forsætisráðherrann hafði áhrif á leiktíma Englands Balogun fékk að spila en Belgar áfram eftir stjörnuleik Ancelotti áfram þrátt fyrir versta árangurinn í 60 ár Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Martínez hættur með portúgalska landsliðið Spá því að ferðamennskan blómstri á eyjunum eftir HM Uppgjörið: Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Sjá meira