Söfnunaráráttan hófst í Írak Guðsteinn Bjarnason skrifar 15. júlí 2013 11:13 Keith Alexander, yfirmaður NSA. Mynd/AP
Breski blaðamaðurinn Glenn Greenwald segir að hömluleysið í njósnum bandarískra stjórnvalda megi rekja til óstjórnlegrar söfnunaráráttu Keith Alexander, yfirmanns bandarísku þjóðaröryggisstofnunarinnar, NSA. Þetta er „ástæða þess að Edward Snowden fórnaði frelsi sínu til að geta stigið fram” og sagt heiminum frá því sem er í gangi. Greenwald skrifar um þetta á vef breska dagblaðsins The Guardian nú í morgun, og vísar til umfjöllunar um Keith Alexander í bandaríska dagblaðinu The Washington Times. Þegar Alexander kom til starfa sem yfirmaður NSA árið 2005 voru árásir með heimagerðum sprengjum hryðjuverkamanna í hámarki í Írak. Til að ná utan um vandann tók Alexander fljótlega þann pól í hæðina að „safna þessu öllu”, eins og það var orðað. Öllum net- og símasamskiptum í Írak var safnað saman og svo var hægt að leita í safninu að einhverju, sem gæti komið Bandaríkjamönnum á sporið um það sem uppreisnarmenn væru að bauka.Breski blaðamaðurinn Glenn Greenwald í viðtali við AP í Brasiíu í gær.Nordicphotos/AFPÍ greininni í Washington Post er því ítarlega lýst hvernig smám saman var farið að beita þessari aðferð, sem til að byrja með var einungis notuð í Írak, yfir á öll samskipti fólks í Bandaríkjunum og heiminum öllum. „Frekar en að leita að einni nál í heystakknum, þá var hans aðferð þessi: Söfnum saman öllum heystakknum,” er haft eftir fyrrverandi bandarískum leyniþjónustumanni. „Þeu átta ár sem hann hefur farið með forystuna í fjarskiptaeftirlitsstofnun landsins hefur Alexander, sem nú er 61 árs, hægt og hljótt komið á byltingu í getu stjórnvalda til að safna saman upplýsingum í nafni þjóðaröryggis,” segir ennfremur í The Washington Post: „Og rétt eins og hann gerði í Írak, þá hefur Alexander beitt þrýstingi til að ná fram öllu sem hann getur náð fram: tækjabúnaði, fjármunum og lagalegum heimildum til að safna saman og geyma gríðarlegt magn af hráum upplýsingum um samskipti fólks í Bandaríkjunum og erlendis.” Greenwald segir þessa grein í The Washington Post segja allt sem segja þarf um málið og ástæðu þess að Edward Snowden hafi ákvðið að ljóstra upp um allt saman. Greenwald hefur verið í góðum tengslum við Snowden og talað máli hans í fjölmiðlum. Nú síðast um helgina skýrði Greenwald frá því, í viðtali við fjölmiðla í Suður-Ameríku, að Snowden búi enn yfir miklu magni af gögnum um starfsemi NSA. Snowden hafi ekki í hyggju að birta þessi skjöl, en þau séu geymd dulkóðuð víða um heim og verði birt fari svo að Snowden láti lífið fyrir tilstilli bandarískra stjórnvalda.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Sjá meira