Búddamunkur á flótta í Taílandi Guðsteinn Bjarnason skrifar 18. júlí 2013 13:00 Munkurinn Wirapol Sukphol í sófanum vinstra megin á myndinni. Mynd/AP
Taílenski búddamúnkurinn Wirapol Sukphol er eftirlýstur fyrir stórfellda glæpi, þar á meðal nauðganir, fjársvik og hugsanlega fíkniefnasmygl og manndráp af gáleysi. Hann er 33 ára gamall og var frekar lítt þekktur í Taílandi þar til fyrir mánuði eða svo, þegar myndband birtist á Youtube þar sem hann sást ferðast um á einkaþotu með rándýra ferðatösku frá Luise Vuitton. Þetta lúxuslíf munksins vakti mikla athygli, enda stangaðist það allmjög á við fábreytt munkalífið sem hann hafði heitið að lifa eins og aðrir búddamunkar. Athyglin varð til þess að fleira kom fram í dagsljósið. Þar á meðal kom í ljós að hann hafði sankað að sér miklum eignum sem metnar eru á einn milljarð bata, en bat er gjaldmiðill Taílands. Þetta er jafnvirði nærri fjögurra milljarða króna. Nú í vikunni lýsti lögreglan eftir honum og gaf út handtökuskipan. Hann er ákærður meðal annars fyrir nauðganir og fjársvik, en auk þess er hann til rannsóknar vegna gruns um aðild að peningaþvætti, fíkniefnasmygli og manndrápi af gáleysi, sem tengist umferðarslysi. Wirapol var í Frakklandi þegar allt þetta kom fram í dagsljósið. Talið er að hann hafi flúið þaðan til Bandaríkjanna. Þetta er stærsta hneyksli sem komið hefur upp í Taílandi í tengslum við búddatrú. „Af og til hafa komið upp mál manna sem hafa misnotað sér munkastöðu sína, en aldrei fyrr hefur munkur verið flæktur í svona marga glæpi,” hefur AP fréttastofan eftir Pong-in Intarakhao, yfirmanni í taílensku lögreglunni.
Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Sjá meira