Langvarandi kannabisneysla kann að draga úr metnaði Jóhannes Stefánsson skrifar 1. júlí 2013 15:30 Rannsakendurnir hafa orð á því að sumir neytendur kannabisefna virðast almennt metnaðarlausir.
Samkvæmt nýrri rannsókn frá Imperial háskólanum í Lundúnum virðast langtímanotendur kannabisefna framleiða minna af dópamíni en aðrir. Rannsóknin leiddi í ljós að magn dópamíns í hluta heilans sem kallast striatum var almennt minna hjá langtímaneytendum efnisins og hjá þeim sem byrjuðu að neita þess við ungan aldur, heldur en almennt gerist. Rannsakendurnir telja þetta skýra hvers vegna suma kannabisneytendur virðist skorta metnað til að stunda vinnu eða rækja almenn áhugamál. Rannsóknin var framkvæmd af vísindamönnum við Imperial háskólann í Lundúnum, UCL og King's háskólann í Lundúnum. Hún var fjármögnuð af Rannsóknarráði læknisfræða (e. Medical Research Council) og gefin út í fagtímaritinu Biological Psychiatry. Rannsakendurnir notuðust við svokallaðar PET myndir af heilum þáttakenda til að kanna dópamínframleiðslu í striatum-svæði heilans í 19 kannabisneytendum og framkvæmdu svo sömu rannsókn á 19 aðilum sem ekki neyttu efnisins, af sama kyni og á sama aldri. Allir kannabisneytendurnir höfðu upplifað einkenni geðrofa við neyslu efnisins, til dæmis með því að upplifa ofsjónir, óvenjulegar skynjanir eða skrýtnar hugsanir á borð við þá að þeim stæði ógn af einhverju óþekktu. Rannsakendurnir höfðu í upphafi talið að neytendur efnisins byggju við aukna framleiðslu dópamíns í ljósi þess að þeir höfðu allir upplifað einhverskonar geðrof, sem tengjast jafnan aukinni dópamínframleiðslu. Svo var ekki heldur varð niðurstaðan gagnstæð. Neytendurnir sem tóku þátt í rannsókninni höfðu allir hafið neyslu á bilinu 12 til 18 ára aldurs. Það var fylgni á milli lægri dópamínframleiðslu og því hversu snemma viðkomandi hafði hafið neyslu sína. Þá var einnig sambærileg fylgni við þá sem reyktu meira. Aðrar rannsóknir sem tekið hafa tekið til fyrrum kannabisneytenda hafa ekki bent til þess að dópamínframleiðsla þeirra sem neyttu áður efnisins sé minni en annarra. Það þykir benda til þess að hægt sé að snúa lágri dópamínframleiðslu við með því að hætta neyslunni. Nánar er fjallað um málið á vef Imperial College London.
Mest lesið Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Fleiri fréttir Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Sjá meira