Falinn hljóðnemi fannst í sendiráði Ekvador Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 3. júlí 2013 18:08 Julian Assange hefur haldið til í sendiráði Ekvador í London í meira en ár. Utanríkisráðherra Ekvador greindi frá því í gær að falinn hljóðnemi hafi fundist í sendiráðinu á dögunum. MYND/AFP
Falinn hljóðnemi fannst í sendiráði Ekvador í London, en þar hefur Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, dvalið í meira en ár. Þessu greindi Ricardo Patiño, utanríkisráðherra Ekvador, frá í gær. Búnaðurinn fannst fyrir tveimur vikum síðan inni á skrifstofu sendiherra Ekvadors, Ana Alban, og talið er fullvíst að um hlerunartæki sé að ræða. Ekki er vitað með vissu hver kom hljóðnemanum inn í sendiráðið, hversu lengi hann hefur verið þar eða hver tilgangur hans var. Ricardo Patiño sagði uppgötvun hljóðnemans vera mikil vonbrigði og bera vott um siðferðisskort af hálfu þess sem kom honum fyrir. Sendiráð Ekvador skaut skjólhúsi yfir Assange fyrir meira en ári síðan, en ef hann stígur fæti út fyrir sendiráðið verður hann að öllum líkindum framseldur til Svíþjóðar þar sem hann er sakaður um kynferðisbrot gegn tveimur konum. Hann ætti svo á hættu að vera framseldur til Bandaríkjana frá Svíþjóð fyrir að leka trúnaðarupplýsingum bandarískra yfirvalda til almennings í gegnum WikiLeaks. Samskipti Ekvador og Bretlands hafa verið stirð síðan sendiráðið veitti Assange pólitískt hæli, en samningaviðræður um málið hafa engan árangur borið. Það lítur því út fyrir að Assange muni dveljast í sendiráðinu um ókomna tíð. Ricardo Patiño sagði á blaðamannafundi á dögunum að meðhöndlun máls Assange væri „algerlega óréttlát,“ en tugir breskra lögreglumanna halda til fyrir utan sendiráðið allan sólarhringinn. The Guardian greinir frá.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Sjá meira