Forsetinn kominn heim Jakob Bjarnar skrifar 4. júlí 2013 08:31 Morales var fagnað sem hetju þegar hann kom heim.
Evo Morales, forseti Bólivíu, var fagnað sem hetju þegar hann kom heim í gær. Hann vandaði Bandaríkjamönnum, og ráðamönnum í Evrópu, ekki kveðjurnar. Flugvél Morales forseta varð að lenda í Austurríki að kvöldi þriðjudags, á leið frá Moskvu, vegna þess að frönsk og austurrísk yfirvöld meinuðu flugvél hans að fara um lofthelgi sína vegna gruns bandarísku leyniþjónustunnar um að Edward Snowden uppljóstrari væri um borð. Ríkisstjórnin tók á móti Morales auk mikils mannfjölda á flugvellinum í La Paz´s. "Þetta er ögrun gagnvart heilli heimsálfu, ekki bara forseta landsins," sagði Morales heim kominn. Hann sagði jafnframt að heimsvaldastefna Bandaríkjamanna lýsti sér í ofríki og kúgun. En, bólivíska þjóðin myndi ekki láta svínbeygja sig né hræða. Aðrir leiðtogar í Suður-Ameríku hafa einnig lýst atvikinu sem óafsakanlegu. Og að þjóðir Evrópu séu taglhnýtingar Bandaríkjamanna. Frakkar hafa beðið Bólivíumenn opinberlega afsökunar á atvikinu. Bólivía hefur einkum beint spjótum sínum að Frakklandi, Ítalíu, Spáni og Portúgal fyrir að hindra að flugvél forsetans færi um lofthelgi sína. Forseti Frakklands, Francois Hollande, sagði, en hann var þá staddur í Berlín, að hann hefði veitt leyfi um lofthelgina um leið og hann vissi að þetta væri flugvél Morales
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fleiri fréttir Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Sjá meira