Upptökuforrit í síma hjálpaði leigubílstjóra að "sanna sakleysi sitt" Jóhannes Stefánsson skrifar 4. júlí 2013 20:45 Astria Berwick sakaði leigubílstjórann um að hafa ráðist á sig í leigubílnum. TELEGRAPH
Kona sem sakaði leigubílstjóra ranglega um kynferðisofbeldi hefur nú verið fangelsuð vegna upploginna saka. Atvikið átti sér stað í Bretlandi þar sem Astria Berwick sakaði leigubílstjórann Mohammed Arsi um að hafa ráðist á sig með hníf og beitt sig kynferðisofbeldi. Leigubílstjórinn „sannaði sakleysi sitt" með upptökuforriti sem hann var með í símanum og hafði í gangi vegna þess að upptökubúnaður leigubílsins var bilaður. Berwick játaði að hafa logið til um atvikið fyrir rétti og var dæmd í 16 mánaða fangelsi vegna þessa. Málið fór fyrir dóm í Nottingham vegna þess að Berwick hafði sagt lögreglu að Arsi hafi beitt sig alvarlegu kynferðisofbeldi. Dómarinn í málinu sagði Berwick hafa sýnt af sér „fráleita hegðun gagnvart fullkomlega saklausum manni sem var bjargað af upptökunni í símanum." Berwick hafði logið til um árásina af „óskiljanlegum ástæðum," samkvæmt dómaranum. Leigubílstjórinn sem er tveggja barna faðir segir lífsreynsluna hafa rústað lífi sínu, sem hafi leitt til þess að hann hafi ekki getað stundað vinnu í mánuð, auk þess sem hann upplifði svefntruflanir og þyngdartap. „Hún breytti lífi mínu. Ég er allt annar maður í dag og er hræddur við að fara út úr húsi," sagði Asif. „Ég get ekki hætt að hugsa hvers vegna hún gerði þetta. Ég hleypti henni bara út og hún var bara venjulegur farþegi." Hann sagðist hafa fundist hann vera heppinn vegna þess að hafa kveikt á forritinu, því án þess væri hann að bíða þess að fara fyrir dómara vegna lyganna. „Ef ég myndi einhverntímann hitta hana aftur, þó að ég vilji það ekki, þá myndi ég bara spyrja: Hvers vegna?" Nánar er sagt frá málinu á vef Telegraph.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fleiri fréttir Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Sjá meira